17.05.1980
Neðri deild: 79. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2786)

76. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Allshn. Nd. hefur farið yfir frv. til L, eins og það kom frá Ed., um veitingu ríkisborgararéttar. Við þennan nafnalista var síðan bætt fimm nöfnum á þskj. 521 og einu nafni á þskj. 548. N. er sammála um að afgreiða frv. svofellt héðan úr d. og leggur það til.