08.01.1980
Sameinað þing: 7. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í B-deild Alþingistíðinda. (280)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Eftirfarandi bréf hefur borist: „Reykjavík, 8. jan. 1980. Formaður þingflokks Framsfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkvæmt beiðni Ólafs Þ. Þórðarsonar, 5. þm. Vestf., sem vegna anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér samkv. 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sigurgeir Bóasson skrifstofustjóri í Bolungarvík, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram rannsókn kjörbréfs í sameinuðu þingi.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Ég vil biðja kjörbréfanefnd að athuga kjörbréf Sigurgeirs Bóassonar, þar sem hann hefur ekki tekið sæti á þessu þingi, og gef hlé í 8 mínútur. Fundinum er frestað. — (Fundarhlé.)