19.05.1980
Efri deild: 96. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2845 í B-deild Alþingistíðinda. (2827)

62. mál, meðferð opinberra mála

Frsm. (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til umfjöllunar frv. til l. um breyt. á l. nr. 74 21. ágúst 1974, um meðferð opinberra mála, sbr. l. nr. 23 6. maí 1976. Frv. þetta fjallar um sektarheimild lögreglustjóra og sektarheimild lögreglumanna. Með frv. er verið að hækka sektarmörk vegna verðlagsbreytinga þannig að þær fylgi verðlagsþróun, en sektarfjárhæðir þessar hafa verið óbreyttar frá árinu 1976.

Nefndin er sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt.