28.05.1980
Sameinað þing: 68. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3204 í B-deild Alþingistíðinda. (3152)

Rannsókn kjörbréfs - varamenn taka þingsæti

Frsm. (Ólafur Jóhannesson utanrrh.):

Herra forseti. Samkvæmt bréfi því, sem áðan var lesið hér af forsetastóli, hefur kjörbréfanefnd komið saman á fund og athugað kjörbréf fyrir Finnboga Hermannsson. Hún hefur ekkert fundið athugavert við það og leggur því til að það verði samþykkt og kosning hans tekin gild.