29.05.1980
Neðri deild: 91. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3222 í B-deild Alþingistíðinda. (3179)

17. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Það er augljóst að sumar af þeim breytingum, sem hv. Ed. gerði á því frv. sem hér er til afgreiðslu, stefna fjármögnun hins opinbera veðlánakerfis í algjöra óvissu, að ekki sé meira sagt, og þar með flestum þeirra markmiða sem lögunum var ætlað að ná. Með þeirri brtt., sem hér er til afgreiðslu, er þess freistað að bæta allverulega úr. Ég segi já.