29.05.1980
Neðri deild: 91. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3223 í B-deild Alþingistíðinda. (3182)

17. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Með vísan til þess, sem fram kemur í nál. 1. minni hl., bæði á þskj. 641 og 608, sem lýsir vel afstöðu þm. Alþfl. til þessa máls, og í trausti þess, að ríkisstj. sjái fyrir fjármagni til þess að hægt verði að standa við skuldbindingar þær sem þetta frv. setur, munu þm. Alþfl. greiða þessu frv. atkv. Ég segi já.