29.05.1980
Sameinað þing: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3240 í B-deild Alþingistíðinda. (3226)
205. mál, launasjóður rithöfunda
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég skal ekki verða langorður um þetta mál. Efni þessarar till. er einfalt eða svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skipuð verði hið fyrsta, að tilhlutan menntmrn., nefnd til að athuga og endurskoða lög nr. 29/1975, um launasjóð rithöfunda, og reglugerð þeim lögum samkvæmt.
Nefndin skal skipuð eftir tilnefningu þingflokkanna og skila áliti, er næsta reglulegt Alþingi kemur saman.“ Flm. þessarar till. eru tíu úr þrem stjórnmálaflokkum:
Sigurlaug Bjarnadóttir, sem hér var varaþm., Halldór Blöndal, Guðmundur G. Þórarinsson, Birgir Ísl. Gunnarsson, Eiður Guðnason, Salome Þorkelsdóttir, Árni Gunnarsson, Friðrik Sophusson, Davíð Aðalsteinsson og Sverrir Hermannsson.
Við vitum hvernig þetta mál er til komið. Þannig stendur á, að fyrir skömmu fór fram úthlutun úr Launasjóði rithöfunda sem olli miklu fjaðrafoki hjá félagasamtökum rithöfunda þannig að um fimmti hver rithöfundur skrifaði undir skjal þar sem skorað var á eða hvatt var til þess að endurskoðun á lögum um sjóðinn færi fram. Eins og fram hefur komið tók aðalfundur Rithöfundasambands Íslands undir þá áskorun með því að skipa nefnd á sínum vegum til að endurskoða þá löggjöf þegar á eftir. Í endurskoðunarnefndinni eiga sæti tveir af þeim mönnum sem skrifuðu undir þetta mótmælaskjal.
Ég vil vekja athygli á því, að sé höfð hliðsjón af þeirri sögu, hvernig listamenn hafa verið styrktir, hefur að jafnaði komið fram að vafasamt er að hafa svo fáa menn sem þrjá til að úthluta fé sem þessu og hefur reynst affarasælla að hafa þá fleiri, jafnvel sjö, til þess að fleiri sjónarmið komi fram og sjóndeildarhringurinn verði víðari.
Herra forseti. Þar sem mjög er á þinghaldið liðið geri ég ekki till. að þessari þáltill. verði vísað til n., en óska eftir því að hún hljóti afgreiðslu nú á þessum fundi og komi til atkv.