10.01.1980
Sameinað þing: 9. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í B-deild Alþingistíðinda. (337)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Jón Helgason):
Vegna orða hv. 1. þm. Reykn. í upphafi ræðu hans vil ég taka það fram, að eins og hv. alþm. er kunnugt hefur ræðutími utan dagskrár ekki verið takmarkaður að undanförnu. Þar sem mér virtist að erindi hv. 4. landsk. þm. væri fyrst og fremst fsp., fannst mér eðlilegt að um þetta mál væri miðað við ræðutíma skriflegra fsp. En þar sem slíkt fyrirkomulag er ekki í samræmi við venju, sem hefur verið hér að undanförnu en mér finnst þó að eðlilegt væri að um þetta gilti, þá ætlaði ég ekki að ganga lengra að þessu sinni en beina þessum tilmælum til hv. alþm. og vekja athygli á þeim. En ég tel að að þessu beri að stefna.