14.01.1980
Sameinað þing: 10. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (357)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Jón Helgason):
Borist hefur eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 10. jan. 1980.
Ingólfur Guðnason, 5. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég undirritaður get ekki vegna sérstakra anna sótt þingfundi næstu tvær vikur óska ég eftir að 1. varamaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson skattendurskoðandi á Siglufirði, taki sæti mitt á Alþingi þann tíma sem ég verð fjarverandi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sverrir Hermannsson,
forseti Nd.“
Ég vil biðja kjörbréfanefnd að taka þetta til athugunar og verður gefið fundarhlé í 8 mínútur. — [Fundarhlé.]