12.12.1979
Sameinað þing: 1. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Rannsókn kjörbréfs

Aldursforseti (Gunnar Thoroddsen):

Þingmönnum hefur nú verið skipað í kjördeildir og munu þær skipta með sér verkum í samræmi við ákvæði þingskapa, þannig að 1 deild fær 2. deild, 2. deild fær 3. deild og 3. deild fær 1. kjördeild kjörbréf þeirra þm. sem eru í hverri þeirra fyrir sig.

Fundarstaðir fyrir kjördeildir verða sem hér segir: 1. kjördeild hér í fundarsal Nd. 2. kjördeild í fundarsal Ed. og 3. kjördeild í flokksherbergi Sjálfstæðisflokksins. — Ég bið hv. þm. Albert Guðmundsson að kalla saman 1. kjördeild, hv. þm. Birgi Ísl. Gunnarsson að kalla saman 2. kjördeild og hv. þm. Alexander Stefánsson að kalla saman 3. kjördeild.

Nú verður gert hlé á fundinum meðan kjördeildir starfa. Fundinum er frestað. — [Fundarhlé.]