24.01.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í B-deild Alþingistíðinda. (578)

51. mál, ráðstöfun á aðlögunargjaldi

Iðnrh. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Það er aðeins stutt aths. út af því sem kom fram hjá hv. þm. Alexander Stefánssyni.

Frá tillögum iðnrn. var gengið í des., að vísu ekki fyrr en seint í des., og þær sendar hagsýslustofnun af því að þá var ekkert Alþingi. Ég skal taka það á mig. Að hinu hef ég ekki gáð, eftir að þing kom aftur saman, að tillögurnar kæmust til fjvn., en ég skal bæta úr því strax.