24.01.1980
Neðri deild: 26. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
79. mál, olíugjald til fiskiskipa
Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um það frv. til l. sem hér liggur fyrir deildinni. Ég trúi að hv. þm. deildarinnar sé þetta mál það kunnugt.
Staða málsins er sú, að fiskverðsákvörðun getur legið fyrir á grundvelli þeirra lagafrv., sem nú hafa verið til umfjöllunar í þinginu, og þ. á m. á grundvelli þess frv. sem hér er lagt til að verði að lögum. Samkv. því er gert ráð fyrir að olíugjald lækki úr 9% í 5% . Um þetta mál virðist geta orðið samstaða allra aðila í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins.
Ég vil einungis geta þess, að þegar seinast var tekin ákvörðun um verð á gasolíu var við það miðað að fobverð gasolíu væri 328.83 dollarar, en skráð verð í des. hefur verið á bilinu 350–360 dollarar, eða um það bil 30 dollurum hærra, og svipað hefur gilt um janúarmánuð. Menn mega því eiga von á að gasolíuverðið hækki um kannske 7–9% ef marka má þessar tölur. Hækkun olíu til fiskiskipa um 7% þýðir um 1.5 milljarða á ársgrundvelli.
Að lokum vil ég benda sérstaklega á það vegna misskilnings sem gætir víða í þjóðfélaginu, að hér er alls ekki um neins konar olíustyrk að ræða. Hér er í rauninni um það að ræða að sjómenn hafa gengist undir það með tilliti til þess að kaup þeirra eigi ekki að hækka með hækkandi olíuverði, að fram hjá skiptum verði tekinn hluti af hinu eiginlega fiskverði sem fiskvinnslan greiðir, sá hluti sem nefndur er olíugjald.
Ég ítreka, að um þetta mál lítur út fyrir að verða samstaða í Verðlagsráði sjávarútvegsins, og legg áherslu á að það geti hlotið sem skjótasta afgreiðslu. Von mín er sú, að hv. d. sjái sér fært að ljúka þessu máli í kvöld.
Ég legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og sjútvn.