30.01.1980
Efri deild: 30. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (704)
84. mál, Kvikmyndasafn Íslands
Helgi Seljan:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ég vil fagna þessu frv. og um leið lýsa yfir ánægju minni yfir því, að í þessi mál er að færast fjörkippur. Það er af eðlilegri ástæðu. Það er vegna þess að lög voru sett um Kvikmyndasjóð á árinu 1978 að frumkvæði þá hæstv. menntmrh., Vilhjálms Hjálmarssonar. Forsaga málsins var hins vegar sú, að hv. þm. Ragnar Arnalds hafði þrívegis á þrem þingum flutt ítarlegt frv. um stofnun Kvikmyndasjóðs með myndarlegu framlagi. Örlög þessa frv. urðu þau, að það fékkst ekki útrætt í tvö skipti, en í þriðja skiptið var því svo vísað til ríkisstj., og út úr því kom svo það lagafrv., sem varð að lögum um Kvikmyndasjóð, en þá með miklum breytingum og til muna lakara í alla staði, sérstaklega varðandi fjármálahliðina, heldur en hafði verið gert ráð fyrir í frv. því sem hv. þm. Ragnar Arnalds hafði flutt á sínum tíma og tók mið af, að mig minnir, ákveðnum almennum skemmtanaskatti. Ákveðin prósenta af skemmtanaskatti skyldi renna til þessa sjóðs.
Það er ekkert nema gott um það að segja, að hér sé um ákveðna, fasta tekjustofna að ræða. Mig minnir að í lögum um Kvikmyndasjóð sé um ákveðna lágmarksupphæð að ræða sem skuli veita á fjárl. hverju sinni, 30 millj. kr. Það er eins og mig minni það. Á. m. k. var gert ráð fyrir því við fyrstu fjárlagaafgreiðsluna. Menn töldu sig bundna af því. Ég sé að þessi upphæð hefur nú verið lækkuð niður í 25 millj. Án þess að ég ætli nokkuð að fara að stríða hæstv. menntmrh. eða hv. formanni fjvn., þá minni ég þá á það, að nú er n. að störfum í sambandi við hina ýmsu föstu tekjustofna, þar sem fast er ákveðið um þau mal, og þeir hafa verið miklir talsmenn þess, að allt þyrfti það að endurskoða og helst allt út að falla, að mér hefur skilist stundum, þannig að oft koma hlutirnir ekki vel heim og saman þegar á svo að fara að vinna að hinum einstöku málum. Sannleikurinn er sá í sambandi við hina föstu, afmörkuðu tekjustofna, að þeir reynast býsna vel í ýmsum greinum af þessu tagi. (Gripið fram í.) Já, mjög margir. Þar af leiðandi er vissara fyrir þá, a.m.k. þegar þeir halda fram af eins mikilli ákefð og þeir gerðu í fyrra við samningu Ólafslaganna svokölluðu afnámi allra slíkra fastra tekjustofna, að taka a.m.k. þessa summu út úr.