31.01.1980
Sameinað þing: 19. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í B-deild Alþingistíðinda. (714)
Umræður utan dagskrár
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Mér finnst alveg furðulegt og raunar með öllu óþolandi að ráðh., sem hefur ekki þingmeirihluta á bak við sig, skuli leyfa sér að gefa út reglugerð, sem felur í sér eins umdeilda breytingu og hér um ræðir, og raunar að Alþ. geti engum vörnum við komið nema þá að flytja hér frv. og breyta lögunum sem hæstv. ráðh. segist byggja reglugerðarbreytinguna á. Hæstv. ráðh. las upp úr umr. á Alþ. fyrir fimmtán árum og benti á að lagabreytingin þá hefði verið gerð til þess að gefa út slíka reglugerð. Það eru liðin fimmtán ár síðan. Það sýnir sig að þáv. fjmrh., Magnús Jónsson, hafði ekkert slíkt í huga, því að ef hann hefði haft eitthvað slíkt í huga, hefði hann gefið út þá reglugerð. Þetta er algerlega úr lausu lofti gripið.
Það kann vel að vera, að það sé venja að ráðh. gefi út reglugerðir og geti breytt reglugerðum. En nú situr starfsstjórn að völdum, og ég tel að slíkar stjórnir eða ráðh., sem sitja í slíkum stjórnum, eigi alls ekki að gefa út neinar slíkar breytingar eða reglugerðir, nema nauðsyn beri til svo að þjóðlífið geti gengið með eðlilegum hætti.
Það hefur stundum verið talað um siðleysi hér á Alþ.. af vissum mönnum. Það er minna rætt undanfarna mánuði að vísu. En ég vil spyrja þá, sem hafa mest talað á undanförnum þingum um siðleysi, undir hvað þetta flokkast. Ég veit ekki betur en hæstv. forsrh. hafi oftar en einu sinni og oftar en tvisvar lagt á það þunga áherslu, að það mundi ekkert verða gert af þessari ríkisstj. nema það sem yrði að gera, sem nauðsyn bæri til. Það vona flestir að þessi ríkisstj. fari frá völdum innan skamms, og því er alveg furðulegt að ráðh. skuli leyfa sér að gefa út reglugerð sem þessa. Það er verst að forsrh. er ekki inni. Ég hefði lagt fyrir hann spurningar og spurt hvort það sé — hann er þarna — hvort það sé misminni að hann hafi margsagt að þessi starfsstjórn mundi ekkert gera nema það sem nauðsyn bæri til til þess að þjóðlífið gæti gengið með eðlilegum hætti. Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Telur hann raunverulega að slík reglugerðarbreyting sé þess eðlis að nauðsyn beri til að gera hana?
Ég sé ekki annað en alþm. verði að taka sig saman og athuga þessa löggjöf og hrinda slíkri framkvæmd af höndum sér. Ég man ekki betur en að á þeim 12 árum, sem ég hef setið á Alþ., hafi þrisvar sinnum verið flutt frv. — eða kannske oftar — um að megi framleiða og selja bjór með svipuðu áfengismagni og hér um ræðir. Hvernig hefur Alþ. brugðist við í öll skiptin? Það liggur fyrir og hefur legið fyrir viljayfirlýsing Alþingis hvað eftir annað um þetta mál. Þess vegna vil ég enn og aftur lýsa furðu minni á því, að hæstv. fjmrh. skuli nota síðustu dagana, sem hann situr í ríkisstj.,til að gefa út slíka reglugerð sem þessi er.
Um málefnið að öðru leyti er ekki hægt að ræða hér, ég vil ekki gera það utan dagskrár, en þessi reglugerðarútgáfa hlýtur að leiða af sér að þessi mál komi inn í þingið á næstu vikum eða næstu dögum. Það er raunar mjög athyglisvert, hvernig þetta gerist. Áberandi maður í þjóðfélaginu ætlar að reyna að koma inn í landið áfengum bjór, og þá virðist allt fjmrn. skelfast og gefur þessa reglugerð út. Það er út af fyrir sig kapítuli sem þyrfti að athuga og ræða betur síðar.