12.02.1980
Sameinað þing: 24. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (818)

Umræður utan dagskrár

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af síðustu upplýsingum hæstv. sjútvrh., þar sem hann greindi frá umræðum í ríkisstj. um þetta mál í morgun áður en tilkynning var út gefin um málið.

Það er augljóst eftir síðustu upplýsingar ráðh., að hæstv. ráðh. Alþb. bera á þessari ákvörðun fulla ábyrgð. Hefðu þeir talið ákvörðunina þess eðlis að þeir vildu fría sig ábyrgð af henni hefði hún að sjálfsögðu ekki verið gefin út eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Eftir síðustu yfirlýsingu hæstv. sjútvrh. er því ljóst að hæstv. Alþýðubandalagsráðh. bera fulla ábyrgð á ákvörðun um stöðvun veiða og tilkynningu og hljóta að verða axla byrgðar sínar samkv. því.