13.02.1980
Neðri deild: 35. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (846)
107. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Vegna fsp. hv. 7. landsk. þm., Halldórs Blöndals, um niðurgreiðslur vil ég aðeins segja að niðurgreiðslur greiðast auðvitað út alla mánuði ársins og mun verða svo áfram. Hins vegar er fyrirheit í málefnasamningi ríkisstj. um að niðurgreiðslum verði breytt í það horf að þær nemi föstu hlutfalli af söluandvirði landbúnaðarvara. Það skipulag verður tekið upp á þessu ári. (Gripið fram í.) Nei, það hefur ekki veríð ákveðið hvert hlutfallið verður, og það hefur ekki heldur verið ákveðið hvenær slíkt skipulag verður tekið upp. Það verður annaðhvort tekið upp 1. mars eða 1. júní, en að öðru leyti hefur ekki verið ákveðið hversu hátt hlutfallið verður, sem reynt verður að halda fast við, eða hvenær það kemur til framkvæmda.
Ég sé að öðru leyti ekki ástæðu til að eyða orðum að máli hv. fyrrv. fjmrh. Ég tel að formaður fjh.- og viðskn. hafi svarað því sem eftir var hugsanlega að svara af máli hans.
Hann spurði að lokum hvort ég mundi fylgja greiðsluáætlun fyrrv. fjmrh. Ég svara þeirri spurningu neitandi, því þar var ekki um neina venjulega greiðsluáætlun að ræða, heldur að verulegu leyti greiðslustöðvun lögbundinna framlaga. Ég teysti mér ekki til að standa að slíku fyrirkomulagi.