20.02.1980
Efri deild: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (954)

44. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Skattstiginn er eitt af þeim málum sem þarf að athuga og undirbúa mjög vandlega. Ætlunin var að gera það m.a. í væntanlegu þinghléi. Þær till. um skattstíga, sem hér liggja fyrir, hafa ekki einu sinni fengið athugun í n. hv. deildar og er ekki tímabært að ganga frá þeim nú. Þær þurfa miklu vandlegri athugun. Ég segi því nei.