08.12.1980
Neðri deild: 25. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1184 í B-deild Alþingistíðinda. (1094)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Alexander Stefánsson):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sigurgeir Bóasson skrifstofustjóri, Bolungarvík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Steingrímur Hermannsson,

2. þm. Vestf.“

Sigurgeir Bóasson hefur áður átt sæti á Alþingi og býð ég hann velkominn til starfa.