22.10.1980
Sameinað þing: 7. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (121)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 20. okt. 1980. Eiður Guðnason, 5. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Gunnar Már Kristófersson, formaður Alþýðusambands Vesturlands, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Helgi Seljan,

forseti Ed.

Þar sem Gunnar Már Kristófersson hefur ekki átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfinu og vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar. Verður gefið fundarhlé í 5 mínútur. (Fundarhlé.]