10.12.1980
Efri deild: 23. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (1215)

162. mál, ráðgjöf og fræðsla varðandi fóstureyðingar

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég ætla ekki að flytja hér ræðu um það alvarlega mál sem hér er á dagskrá og hv. 4. þm. Vestf. flytur nú í þriðja sinn á hv. Alþ. því að málið hefur ekki náð fram að ganga. En það var ein setning sem kom mér til þess að fara hér í ræðustól. Hann minntist á að hann væri sannfærður um að hinn þögli meiri hluti væri samþykkur þessu frv. Mér er ljúft að lýsa því hér yfir, að ég tilheyri þeim hópi.