11.12.1980
Neðri deild: 28. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1315 í B-deild Alþingistíðinda. (1313)

130. mál, orkulög

Flm. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Ég þakka ráðh. vinsamleg ummæli um þessa lagabreytingu. Ég er honum sammála um að það er margt annað í þessum lögum sem vissulega væri þess virði að taka til athugunar, hvort sem það verður gert af þessari nefnd eða ráðh. mun beita sér fyrir því, að um breyt. á þessum lögum almennt verði að ræða. — En ég vil leggja til að þessu máli verði vísað til 2. umr. og iðnn.