27.10.1980
Sameinað þing: 9. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í B-deild Alþingistíðinda. (140)

Drengskaparheit unnin

Forseti (Jón Helgason):

Þeir Níels Á. Lund og Markús Á. Einarsson hafa ekki setið á Alþingi fyrr og þurfa því að undirrita eiðstaf.

Hinir nýju þingmenn, Níels Á. Lund og Markús Á. Einarsson, undirrituðu drengskaparheit um að halda stjórnarskrá landsins.