15.12.1980
Neðri deild: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1440 í B-deild Alþingistíðinda. (1449)

111. mál, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég vil mæla hér fyrir frv. til l. um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda. Frv. þetta var flutt á hv. Alþingi á s.l. vori í fyrsta sinn, en náði þá ekki fram að ganga. Nú hefur það hins vegar verið flutt öðru sinni og hlotið afgreiðslu frá hv. Ed.

Þegar frv. var flutt á s.l. vori var það flutt samhliða frv. til l. um starfskjör launþega og skyldutryggingu lífeyrisréttinda svo og með frv. til l. um skráningu lífeyrisréttinda. Frv. um starfskjör launþega og skyldutryggingu lífeyrisréttinda varð að lögum, en hinum málunum varð ekki lokið fyrir þingslit, og eru því hér til meðferðar þau tvö frv. sem eftir var að afgreiða, þ.e. þetta og frv. um skráningu lífeyrisréttinda. Þessi frumvörp eru samin af þeim fjölmennu nefndum sem unnið hafa í lífeyrissjóðamálunum á undanförnum árum og nefndar hafa verið 8 manna nefndin og 18 manna nefndin, að mig minnir.

Árið 1974 voru sett sérstök lög um starfskjör launþega. Samkv. ákvæðum þeirra var öllum launþegum rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps. Fjmrn. var fengið um það úrskurðarvald til hvaða lífeyrissjóðs iðgjöld skyldu greidd yrði það ágreiningsmál.

Það kom strax í ljós, er framkvæma átti lögin um starfskjör launþega, að margir launþegar áttu ekki sjálfstæðan aðgang að lífeyrissjóði. Sem úrskurðaraðila var fjmrn. vandi á höndum. Hvarf það að því ráði, að höfðu samráði við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, að stofna sérstakan lífeyrissjóð fyrir þá sem ekki áttu lögskylda eða samningsbundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Fékk sjóður þessi nafnið Biðreikningur lífeyrissjóðsiðgjalda. Var sjóðnum sett reglugerð sem í flestum atriðum var samhljóða reglugerðum sjóða innan Sambands almennra lífeyrissjóða.

Fyrstu árin er biðreikningurinn starfaði voru sjóðfélagar nær eingöngu úr röðum lausráðinna starfsmanna ríkisins. Á undanförnum árum hafa hins vegar margir tengst sjóðnum sem starfa hjá öðrum en ríkinu. Má þar sérstaklega nefna ýmsa sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Um 11 þús. manns eiga nú aðild að Biðreikningi lífeyrissjóðsiðgjalda. Sjóðurinn greiðir ellilífeyri, örorkulífeyri, maka- og barnalífeyri með sama hætti og almennu lífeyrissjóðirnir, enda hefur sjóðurinn gert sérstakan samskiptasamning við Samband almennra lífeyrissjóða.

Með tilkomu laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda, sem samþykkt voru hér á Alþingi s.l. vor, bætast fjölmargir menn, sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, í hóp þeirra sem skyldir eru að greiða lífeyrissjóðsiðgjöld. Ljóst er að margir þessara manna eiga ekki rétt til aðildar hjá neinum ákveðnum sjóði. Þannig er og farið um ýmsa launþega er stunda svo sérhæfð störf að þeir hafa til þessa ekki tengst verkalýðsfélagi eða sjóðum á þeirra vegum. Nú eru tímamót og þykir því rétt að lögbinda sjóð er taki við af Biðreikningi lífeyrissjóðsiðgjalda og verði samastaður þeirra sem ekki eiga lögskyldaða eða samningsbundna aðild að öðrum sjóðum. Stjórn hins nýja sjóðs, Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, verður að verulegu leyti í höndum samtaka lífeyrissjóða. Þannig er reynt að tryggja að hinn nýi sjóður starfi í sem bestu samræmi við aðra lífeyrissjóði í landinu.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi aðfaraorð fleiri um þetta frv. Það hefur hlotið afgreiðslu frá Ed. ágreiningslaust. Ég vil að öðru leyti vísa um efni frv. til aths. sem fylgja því.

Ég vil leyfa mér að leggja til að frv. verði vísað til hv.fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.