27.10.1980
Neðri deild: 6. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í B-deild Alþingistíðinda. (152)
5. mál, barnalög
Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Það má vel vera, að mörg börn séu hér í þinginu, e.t.v. 60 að tölu. Einnig má minna á þá lífsspeki, að tvisvar verður gamall maður barn.
En hv. síðasti ræðumaður spurði hvaða brtt. ég hefði átt við frá heilbr.- og trmrn. Það eru einmitt till. sem hníga í þá átt að greiða götu móður óskilgetins barns svo að hún fái sem fyrst meðlag með barni sínu. Ég fletti þskj. lauslega, en held að það frv. sé einmitt komið fram nú þegar sem 27. mál í Ed. frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar nr. 67 frá 1971, með síðari breytingum. Vona ég að hægt sé að fá fullt svar við þessari fsp. hv. þm. með því að líta á það þskj. Annars þarf ég ekki að taka fram að það er alveg sjálfsagt, að bæði ég og starfsmenn rn. mæti hjá viðkomandi n. og gefi henni allar þær upplýsingar sem við getum látið í té, ef hún óskar þess.