16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)

35. mál, álagning opinberra gjalda

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um álagningu opinberra gjalda á árinu 1980. Hér er um að ræða staðfestingu á brbl, sem gefin voru út sérstaklega með tilliti til þess hvað skattlagning var seint á ferðinni á árinu 1980 af ástæðum sem ekki þarf hér að rekja.

Nefndin leggur til að frv, verði samþykkt, en hv. þm. Matthías Bjarnason, Sighvatur Björgvinsson og Matthías A. Mathiesen undirrita nál. með fyrirvara.