17.12.1980
Efri deild: 35. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (1675)

150. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. skrifaði ég undir það með fyrirvara. Þar er fyrst til að taka, að í frv. er gert ráð fyrir heimild til lækkunar úr 19% í 16%. Mér sýnist að allar forsendur ættu að vera fyrir hendi fyrir lækkun og hana eigi endilega að framkvæma, og með fyrirvaranum vil ég leggja áherslu á það. Í annan stað er langtum eðlilegra að gjald af þessu tagi sé lagt á kwst., og þó að það hafi ekki tekist að þessu sinni vil ég með fyrirvaranum benda á að það verði kannað mjög ítarlega, hvort ekki sé hægt að koma því formi á í framtíðinni.