28.10.1980
Sameinað þing: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í B-deild Alþingistíðinda. (170)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Áður en gengið er til dagskrár vil ég lesa eftirfarandi bréf, sem borist hefur:

„Reykjavík, 28. okt. 1980.

Ritari þingflokks Sjálfstfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Geirs Hallgrímssonar, 1. þm. Reykv., sem farinn er til útlanda í opinberum erindagerðum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður hans, frú Ragnhildur Helgadóttir, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Þar sem Ragnhildur Helgadóttir hefur ekki átt sæti á þingi á þessu kjörtímabili þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi hennar. Vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar. Verður gefið fundarhlé í 5 mínútur á meðan. — [Fundarhlé.]