17.12.1980
Efri deild: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1666 í B-deild Alþingistíðinda. (1788)

172. mál, lántaka 1980 og 1981 og ábyrgðarheimildir

Fjmrh (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég ætla að segja örfáar setningar út af ummælum hv. þm. Lárusar Jónssonar áðan um aukafjárveitingar.

Ég veit ekki í hvaða tilgangi hann er að setja fram fjarstæðu eins og hann var með áðan, en það get ég fullvissað hann um, að á hverju ári, þegar Sjálfstfl. hafði fjmrh., var hann tilneyddur að samþykkja aukafjárveitingar svo tugum skipti á hverju ári.