18.12.1980
Neðri deild: 37. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1851)

47. mál, niðurfelling á opinberum gjöldum barna 1980

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Eins og ég tók fram í minni frumræðu, þá er tilgangur minn með þessu frv. tvíþættur: annars vegar að koma fram réttlætismáli og á hinn bóginn að koma til móts við þau sjónarmið, sem hæstv. forsrh. lýsti í „Beinni línu“, að hér hefði verið um mistök að ræða sem þyrfti að leiðrétta. Og til þess að vera nú elskulegur í hans garð segi ég já.