18.12.1980
Neðri deild: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1705 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)

65. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Með því að ríkisstj. hefur haft um það fulla vitneskju frá því á miðju sumri hver óskapnaður þessi ákvæði tekjuskattslaganna eru og lofað könnun, en ekki hefur rekið eða gengið og jafnvel tölvurnar hafa staðið kyrrar, en þetta frv. fjallar um það ákvæði sem augljósast er og mest áríðandi að breyta og breyta strax, segi ég nei.