19.12.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1747 í B-deild Alþingistíðinda. (1929)

Kosning tveggja endurskoðenda reikninga Útvegsbanka Íslands

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins vegna þessara orða hv. 3. þm. Reykv. upplýsa það, að það bankaráð, sem Alþingi kýs í Seðlabanka Íslands, velur endurskoðanda. Sá endurskoðandi er nú Stefán Svavarsson löggiltur endurskoðandi og dósent í endurskoðun við Háskóla Íslands.