19.12.1980
Neðri deild: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1856 í B-deild Alþingistíðinda. (2024)

171. mál, jöfnunargjald

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þar sem hæstv. viðskrh. hefur lýst því yfir, að samráð verði haft svo sem till. gerir ráð fyrir, þá sjáum við flm. till. ekki ástæðu til að halda fast við hana — sérstaklega vegna þess að þá hefði málið þurft að fara aftur til Ed. — en metum það jafngilt og að till. hafi verið samþykkt að hafa fengið þessa yfirlýsingu hæstv. ráðh.