19.12.1980
Neðri deild: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1859 í B-deild Alþingistíðinda. (2044)

Þingfrestun

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þá er dagskrá þessa fundar tæmd. Þar sem gera má ráð fyrir að þetta sé síðasti fundur í hv. deild fyrir jólahlé vil ég leyfa mér að færa öllum hv. þdm. þakkir fyrir samstarfið það sem af er þessu þingi. Ég vil óska hv. þdm., skrifstofustjóra og starfsliði öllu gleðilegra jóla og góðs árs. Þeim, sem eiga um langan veg heim að sækja, óska ég góðrar heimkomu og heimferðar og vænti þess, að við megum allir heilir hittast til starfa á hinu háa Alþingi á nýju ári.