20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í B-deild Alþingistíðinda. (2066)

1. mál, fjárlög 1981

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég vek athygli hv. þm. á því, að 13. og 14. brtt. a, b, c og d á þskj. 284 ganga allar út á eflingu rannsókna, annars vegar vegna eldis laxfiska í sjó og vötnum og hins vegar til að hefja strax rannsóknir og undirbúning eldis þorsks og annarra nytjafiska í sjó í stórum stíl. Í því sambandi vek ég sérstaka athygli á liðnum 14 b. Ég segi já.