20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í B-deild Alþingistíðinda. (2069)

1. mál, fjárlög 1981

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins vekja athygli þm. á því, að nú er í raun réttri einnig verið að greiða atkv. um d-lið, til rannsókna á eldi sjávarfiska, en þar er gerð till. um 800 millj. kr. Ég vek einnig athygli á því, að þetta er í fyrsta sinn sem flutt er till. um umtalsverða fjárhæð til þess að leggja út í það nýmæli, sem getur orðið Íslendingum mikil lyftistöng í framtíðinni, að hefja eldi sjávarfiska við Ísland. Ég segi já.