20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1866 í B-deild Alþingistíðinda. (2075)

1. mál, fjárlög 1981

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. 34 mínútur yfir kl 10 í dag vaknaði hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson og tveimur mínútum síðar gerði hann mjög skynsamlega grein fyrir atkv. sínu, og með þeim fyrirvara, sem hann gaf, nema ég held mig við þá öld sem við erum á, tek ég fyllilega undir og segi já.