20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (2086)

1. mál, fjárlög 1981

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Þar sem hæstv. landbrh. gaf þá yfirlýsingu hér á fundi í gærkvöld, að hann muni beita sér fyrir því, að hreppsnefnd Kjalarneshrepps fái aðfylgjast með framgangi mála við útvegun á heitu vatni fyrir laxeldisstöðina í Kollafirði og að stefnt verði að því fyrir milligöngu landbrn. að koma á viðræðum milli aðila með samvinnu í huga, þá er till. dregin til baka.