20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1871 í B-deild Alþingistíðinda. (2095)
1. mál, fjárlög 1981
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Hv. 3. þm. Vestf. benti á að vegna þessa styrks til pólitísku flokkanna, sem hér er verið að afgreiða, gæfist Alþingi kostur á því að kaupa hv. þm. lesefni. Þetta er misskilningur og til þess nú að létta af honum þeim áhyggjum mun ég beita mér fyrir því að þessari till. samþykktri, að Alþingi kaupi öll dagblöðin til lestrar fyrir hv. þm., og ég hef tök á því að flytja þessa till. á réttum stað. Þetta er, eins og ég segi, ekkert annað en styrkur til pólitísku flokkanna, sem hér er verið að ákveða árum saman, og með vísun til þess og sérstaklega með vísun til grg. hv. þm. Ólafur Ragnars Grímssonar segi ég já.