20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1874 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)

Þingfrestun

Forseti (Jón Helgason):

Þessi fundur er hinn síðasti fyrir jólahlé og eins og jafnan áður hafa þessir síðustu dagar verið annasamir. En um leið og þessu annríki lýkur vil ég leyfa mér að þakka hæstv. ríkisstj. og hv. alþm. fyrir ágætt samstarf í vetur og umburðarlyndi í minn garð. Einnig þakka ég varaforsetum, skrifurum, skrifstofustjóra og öllu öðru starfsfólki Alþingis fyrir ágæt störf.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum Alþingis ásamt fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Ég vona og óska þess, að við megum öll hittast hér heil á húfi að loknu jólaleyfi.