26.01.1981
Sameinað þing: 40. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1877 í B-deild Alþingistíðinda. (2114)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Hinn 9. jan. s.l. var gefið út svo hljóðandi forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh., að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 26. jan. 1981, kl. 14.00.

Gjört í Reykjavík, 9. janúar 1981.

Vigdís Finnbogadóttir.

Gunnar Thoroddsen.

Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta sameinaðs Alþingis, alþingismönnum og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs, þakka þeim liðna árið um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.