26.01.1981
Sameinað þing: 40. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1877 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)
Framhaldsfundir eftir þingfrestun
Forseti (Jón Helgason):
Ég þakka hæstv. forsrh. góðar óskir í garð okkar alþm. og jafnframt óska ég ríkisstj., hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs um leið og ég þakka samstarfið á liðnu ári. Eins og hæstv. forsrh. hefur lýst hefst nú fundur í sameinuðu Alþingi.