28.01.1981
Neðri deild: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1964 í B-deild Alþingistíðinda. (2206)
151. mál, þingsköp Alþingis
Flm. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Ég vil nefna eitt efnisatriði sem varðar frv. þetta. Í þessu frv. er á engan hátt verið að skerða ræðutíma, eins og kom fram hjá hv. 1. þm. Norðurl. v., Páli Péturssyni. Það er aðeins gert ráð fyrir því, að á mælendaskrá hér á Alþingi gangi ráðherrar inn í röð þeirra, sem á mælendaskránni eru, alveg eins og um hverja aðra þm. sé að ræða. Það er aðeins í því tilviki þegar um frávik frá þessari röð er að ræða, þá komast ráðherrar strax að þegar þeir óska þess, en þá aðeins í þrjár mínútur. M.ö.o. er ekki verið að skerða málfrelsi, það er aðeins verið að jafna rétt eða leggja til að réttur manna sé jafnaður. Það eru þessi forréttindi sem takmörkuð verða ef þessi litla breyting, sem ég vil nefna svo, nær fram að ganga.