02.02.1981
Efri deild: 46. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2048 í B-deild Alþingistíðinda. (2261)
193. mál, viðnám gegn verðbólgu
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Eins og menn vita sammæltu dm. sig um það í upphafi fundar að reyna að hjálpast að um að ljúka þessum umr. hér í dag þannig að þetta mál gæti gengið til nefndar. T.d. lofaði ég forseta að reyna að tala ekki miklu meira en í hálftíma eða svo. Ég held að ég hafi staðið við það og menn hafi reynt að takmarka mál sitt. Ég skal ekki eyða nema þrem mínútum eða svo núna. En ég leyfi mér þó að vekja á því athygli að stuðningsmenn stjórnarinnar hafa ekki mætt ýkjavel hér í deildinni í dag. Við stjórnarandstæðingar höfum hins vegar verið hér allir og bjuggumst við því, að við yrðum að hjálpa til við að koma málinu til nefndar, eins og oft hefur gerst áður. Hv. stjórnarþm. hafa þó látið svo lítið að sýna sig hér núna og forsrh. þar á meðal, þótt hann kæmi heldur seint og léti a.m.k. ekki einn þm. njóta þeirrar virðingar á Alþingi að hann hlýddi á hann þó að hann flytti þetta mál. En látum það liggja á milli hluta.
Ég gleðst mikið yfir því, ef hagur sjávarútvegsins er með allra besta móti, — það verður þá ekki mikill vandi að ákveða fiskverð, leysa sjómannadeilur og annað slíkt, — og að gengið skuli vera orðið svona grjóthart eru ein mestu gleðitíðindi sem ég hef heyrt í háa herrans tíð. Þetta er allt saman leyst, enda kannske von og vísa hæstv. forsrh. að hrista þetta fram úr erminni fyrir þjóð sína. Öll hljótum við að gleðjast yfir því.
Ég er auðvitað þakklátur hæstv. ráðh. fyrir að gera tilraun til að svara spurningu minni um hvað vextir og verðbætur mundu verða, hvort vextir mundu verða hærri en samkv. Ólafslögum eða lægri. Hann segir að nú sé ákveðið, skilst mér, eða a.m.k. er það hans skoðun, að vextir eigi að vera 1% ofan á fulla verðtryggingu. Þá held ég að menn geti farið að reikna að vaxtabyrði og vaxtatekjur muni verða heldur hærri, miðað við það verðbólgustig sem við búum.við, en samkv. Ólafslögum. (ÓRG: Þm. hefur ekki hlustað á það sem sagt var.) Það sem hæstv. forsrh. sagði? Hlustaði hv. þm. á það? Hann hefur ekki sýnt sig hér í dag. (ÓRG: Ég hlustaði á það.) Við skulum láta reynsluna skera úr um hvort vextir verða hærri eða lægri ef það á að verða full verðtrygging. Kannske á hún ekki að vera það, en ég held að engum detti í hug að verðbólgustigið verði minna en 50% og ofan á það eiga þó að bætast einhverjir vextir. Ætli vaxtabyrði og vaxtatekjur fari þá ekki að verða ofurlítið hærri en Ólafslög gerðu ráð fyrir. — En eins og ég sagði ætla ég ekki að tefja tímann og þakka hæstv. forsrh. hjartanlega fyrir tilraun til að svara einni spurningu.