23.02.1981
Sameinað þing: 52. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2461 í B-deild Alþingistíðinda. (2620)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hafa borist eftirfarandi tvö bréf:

„Reykjavík, 19. febr. 1981.

Ólafur Jóhannesson, 5. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Þorv. Garðar Kristjánsson,

forseti Ed.

„Reykjavík, 19. febr. 1981.

Ingvar Gíslason, 1. þm. Norðurl. e. hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, Hákon Hákonarson formaður Sveinafélags járniðnaðarmanna á Akureyri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sverrir Hermannsson, forseti Nd.“ Eins og fram kemur í þessu bréfi þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi Hákonar Hákonarsonar og vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar. Verður gefið fundarhlé á meðan. — [Fundarhlé.]