24.02.1981
Sameinað þing: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2512 í B-deild Alþingistíðinda. (2688)

192. mál, samkomulag um gagnkvæmar heimildir Íslendinga og Færeyinga til veiða á kolmunna

Frsm. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Utanrmn. hefur fjallað um till. til þál. um staðfestingu á samkomulagi um gagnkvæmar heimildir Íslendinga og Færeyinga til veiða á kolmunna og orðið sammála að mæla með að þáltill. verði samþykkt.