26.02.1981
Neðri deild: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2606 í B-deild Alþingistíðinda. (2768)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 26. febr. 1981.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Hjörleifur Guttormsson,

5. þm. Austurl.“

Sveinn Jónsson hefur átt sæti á Alþingi áður og þarfnast kjörbréf hans því ekki rannsóknar. Býð ég hann velkominn til starfa í hv. deild.