11.03.1981
Neðri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2850 í B-deild Alþingistíðinda. (2969)

227. mál, siglingalög

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég stend upp til að lýsa fylgi mínu við þessa breytingu. Mér er að sjálfsögðu einnig kunnugt um tilmæli sjómannasamtaka og hafði gefið fyrirmæli um, að frv. um þetta efni yrði útbúið. Nú er slíkt frv. fram komið og ég fagna því og lýsi stuðningi mínum við málið.