17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2908 í B-deild Alþingistíðinda. (3027)

206. mál, almennar skoðanakannanir

Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þessi svör og það er óþarfi að ræða meira um það. Ég vil undirstrika að ljóst er að þessi fsp. var tímabær. Ég held að hér sé um mál að ræða sem alla varðar. Ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. láti verða af því að koma því til leiðar að á þessu máli verði tekið og settar verði almennar reglur sem verði leiðbeinandi í málinu í heild.