17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2916 í B-deild Alþingistíðinda. (3046)
Umræður utan dagskrár
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég skal ekki flytja hér langa ræðu.
Ég skal gjarnan viðurkenna það, sem kom fram í ræðu hæstv. forsrh., að sú nefnd, sem ég átti sæti í og fjallaði um skoðanakannanir, lauk aldrei störfum. Hún vann talsvert starf framan af, en lauk ekki störfum. Það skrifast auðvitað á þá sem sátu í þeirri nefnd og ég er einn þeirra. Það er alveg rétt, að það hefði vissulega verið fengur í því ef sú nefnd hefði lokið störfum á sínum tíma. Þannig gerist það nú með fleiri nefndir, eins og hér hefur komið fram, og ég ætla ekki að fara að taka þetta mál upp aftur.
Ég ætla að nota tækifærið til þess í lokin að segja frá því, að mér finnst og fannst áðan, þegar hæstv. forsrh., sem er talinn einn háttvísasti þingmaður á Alþingi, kemur í stólinn og bendir réttilega á fjarveru hv. þm., að það hlyti að vera skylda þm. þar á meðal mín, sem á hér á dagskránni mál þriðjudag eftir þriðjudag og fæ þeim ekki svarað, að benda á fjarveru ráðh. Mér þykir leiðinlegt að hæstv. forsrh. skuli taka því illa að á þetta skyldi hafa verið bent, því að ég efast um að hann eigi enn sem komið er svo gengt inn í Alþb. að það sé ætlast til þess af honum að hann sé barnapía fyrir hæstv. ráðh. Alþb. Það er óþarfi fyrir hann að taka því þunglega þess vegna.
Ég held að þessar umr. séu út af fyrir sig gagnlegar. Þær verða kannske til þess að hv. þm. mæti betur á fundi þegar um fsp.-tíma er að ræða og fsp. þeirra á að svara. Jafnframt er ég sannfærður um að þessar umr., sem hafa tekið drjúgan tíma af fundartíma í dag, verða til þess að hæstv. ráðherrar skilja að margar þær fsp., sem hv. þm. koma með, eru tímabundnar. Það skiptir verulega miklu máli að við þeim fáist svör innan tiltekins tíma. Það var þess vegna sem ég sá mig knúinn til að koma hér í ræðustól, fyrst fjarvera þingmanns varð tilefni til umr. um þingsköp.
Ég kann hæstv. forsrh. bestu þakkir fyrir að hafa hafið þessar umr. Ég vona að við öll hin hérna lærum af þessum umr. og þetta verði til þess að hér verði betur mætt í framtíðinni.