17.03.1981
Sameinað þing: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2935 í B-deild Alþingistíðinda. (3071)
Umræður utan dagskrár
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. utanrrh. fyrir mjög afdráttarlausa afstöðu sem hann tók í ræðustól áðan. Hans skoðun á þessum málum er alveg ljós. Hæstv. utanrrh. mun ekki una því, að starfssvið hans eða valdsvið, sem hann hefur, verði skert með einum eða öðrum hætti, þó svo þess verði krafist og þó svo að látið verði í veðri vaka að eitthvert samkomulag hafi verið gert um það. Um þetta var hæstv. utanrrh. alveg afdráttarlaus. Hann mun ekki una slíku og hann gaf það til kynna úr ræðustól áðan. Sé ætlast til þess af honum mun hann endurskoða þá ákvörðun sína að sitja sem utanrrh. í hæstv. ríkisstj.
En ég vek athygli á öðru í máli bæði hæstv. utanrrh. og hæstv. landbrh., að þeir tóku fram að ekkert sérstakt samkomulag hefði verið gert utan við stjórnarsáttmálann, sem næði til meðferðar utanríkismála eða varnarmála, og engar sérstakar reglur hefðu verið settar um þann þátt málsins. Ég vek líka athygli hv. alþm. á því, að hæstv. sjútvrh., formaður Framsfl., hefur setið undir þessum umr. eins og dæmdur maður.
Ég ætla að skýra frá því svona til gamans, að þegar þessi mál voru rædd hér síðast voru þeir hæstv. fjmrh. og hæstv. sjútvrh., sem sitja hlið við hlið við þetta borð hér, að varpa á milli sín dálítið einkennilegu litlu blaði með undirskriftum þriggja manna. Ég var einn af þeim þm. sem tóku eftir þessum blaðaskiptum hæstv. ráðh., þegar hæstv. fjmrh. vakti athygli hæstv. sjútvrh. á þessu litla blaði með undirskrift þriggja tiltekinna aðila. Í beinu framhaldi af því og eftir yfirlýsingar hæstv. utanrrh. leyfi ég mér að spyrja formann Alþb. og þá Alþb.-menn að því, hvort rétt geti verið að gert hafi verið eitthvert samkomulag milli formanna stjórnarflokkanna tveggja og hæstv. forsrh., sem undirritað hafi verið, um að ekki yrði afgreidd mál úr ríkisstj. sem einn aðili samstarfsins mundi setja sig afdráttarlaust á móti. Ég á ekki við að sérstök regla hafi verið sett um varnar- eða utanríkismál, heldur sú almenn regla, að ekki yrðu afgreidd mál hjá ríkisstj. sem einn af aðilum stjórnarinnar setti sig alfarið á móti. Þessari spurningu beini ég til t. d. hæstv. félmrh., formanns Alþb., eða hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, formanns þingflokks Alþb., í tilefni af þeim bréfaskiptum sem ég varð áhorfandi að fyrir nokkrum dögum.